túdílú........
hér er ég...ræ ræ ræ...
ókei hljómar ílla, ég er ekki full sko...
hvað er að frétta hmmmm nákvæmlega ekkert, jú ég er að verða
búin með allan matinn sem ég á heima, ég er náttúrulega búin að
vera inni með hlaupabólubarnið og þess vegna er bara að vera
kreativ og búa til mat úr því sem er til, já
Brekkurbæjarfjölskyldan ætti nú að kannast við það ég get búið til
fínan mat úr því sem til er á heimilinu. En maturinn er alveg að
verða búin og ég er þá bara að fara éta loft...jíbbbí
Benedikt fór í leikskólann í gær, já ég var rétt búin að opna
annað augað þegar hann var klæddur og komin fram á gang í krummó og
húfulaus, greyið litla alveg að bilast að vera heima, já ég sem
geggjað hress eitthvað eða þannig, ældi eins og gosbrunnur alla
nóttina og varð sem sagt að vera heima þar sem ég rétt náði að fara
með piltinn á leikskóla og drakk svo massa af kóki og varð fín. Ég
er ekki alveg með það á hreinu hver stjórnar þessum veikindum sem
hellast yfir þetta heimili mitt en nú er komið nóg, nú hættir þú!!!
nú hættir þú!!!!
annars er sjónvarp og internetið búið að halda mér
selskap..vúhú...
Halla mín sætasta og Jói hennar eru að koma í sveitina á morgun
jáááá.....ohhh ég hakka svo til....latte,hvítvín, hlátur og
risaknús...hún Halla mín klikkar ekki...
jæja listaverið kallar þarf aðeins að sinna því..
múss múss
heimasætan...